Lífgas- og áburðarver í Þorlákshöfn fer í umhverfismat

Niðurstaða liggur nú fyrir frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun um að fyrirhugað lífgas- og áburðarver í Þorlákshöfn skuli fara í fullt mat á umhverfisáhrifum. Stöðin verður reist á iðnaðarsvæði við Þorlákshöfn. Í niðurstöðunni kemur fram að þörf sé á frekari greiningu á tilteknum þáttum áður en hægt er að taka endanlega afstöðu, meðal annars með […]
Lært af lífgasveri í Færeyjum

Á vormánuðum fór Terraforming LIFE verkefnishópurinn til Færeyja til að kynna sér hringrásarlausn fyrir meðhöndlun lífrænna hliðarstrauma frá fiskeldi og landbúnaði. Markmið heimsóknarinnar var annars vegar að heimsækja lífgasverið FÖRKA og hins vegar að eiga samtal við fulltrúa bænda sem nýtt hefur áburðinn sem framleiddur er í lífgasverinu. FÖRKA – lífgasver FæreyjaFÖRKA lífgasverið er staðsett […]
Terraforming LIFE kynnt á ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi

Sigurður Trausti Karvelsson, yfirumsjónaraðili Terraforming LIFE, kynnti verkefnið á ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi sem haldinn var í Norræna húsinu fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn var á vegum Rannís en þar komu saman fulltrúar verkefna, stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila til að fara yfir stöðu LIFE verkefna á Íslandi, miðla reynslu og ræða helstu áskoranir og tækifæri. […]
Terraforming LIFE vekur athygli á ManuREsource 2026 í Hollandi

Í byrjun mars tóku fulltrúar Orkídea þátt í alþjóðlegu ManuREsource 2026 ráðstefnunni sem haldin var dagana 4.–6. mars í Ede/Wageningen í Hollandi. Ráðstefnan er einn helsti vettvangur í Evrópu fyrir nýsköpun og lausnir tengdar meðhöndlun og nýtingu lífrænna hliðarstrauma og lífræns áburðar. Terraforming LIFE í brennidepli Á ráðstefnunni stýrðu þau Helga Gunnlaugsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson […]
Terraforming LIFE á LIFE Platform fundi í Bologna

Terraforming LIFE tók þátt í LIFE Platform fundinum „Future-Proofing Europe’s Agri-Food Sector: Innovation, Resilience, Sustainability, and Competitiveness“, sem var haldinn af CINEA og Loftslagsaðgerðadeild Evrópusambandsins. Fundurinn fór fram við Háskólann í Bologna dagana 3.–4. desember 2025. Á fundinum komu saman LIFE-verkefni, stefnumótendur og sérfræðingar til að ræða hvernig nýsköpun og hringrásarlausnir geta styrkt evrópska matvælageirann […]
Umfjöllun um Terraforming LIFE í EU Research Magazine

Terraforming LIFE var til umfjöllunar í hausthefti EU Research Magazine. EU Research fjallar um framsækin evrópsk verkefni sem knýja áfram sjálfbærni og nýsköpun. Í þessari umfjöllun er hægt að lesa nánar um hvernig við vinnum að því að umbreyta fiskeldismykju og búfjáráburði í endurnýjanlega orku og lífrænan áburð, sem stuðlar að ölfugra hringrásarhagkerfi í landbúnaði […]
Tímamót í sjálfbæru fiskeldi og hringrásarhagkerfi á Íslandi

Það gleður okkur að greina frá tímamótum sem marka þáttaskil í sjálfbærri auðlindastjórnun á Íslandi. Fjögur leiðandi fyrirtæki í landeldi – First Water, Laxey, Samherji fiskeldi og Thor landeldi – hafa undirritað viljayfirlýsingu um að koma á formlegu samstarfi um ábyrga og sjálfbæra meðhöndlun og nýtingu hliðarstrauma frá landeldi. Markmið samstarfsins er að umbreyta úrgangi […]