Jákvæðar breytingar kynntar í drögum að nýrri áburðarreglugerð

Date

Drög að nýrri áburðarreglugerð voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda sumarið 2026. Að mati Terraforming LIFE fela drögin í sér mjög jákvæðar breytingar sem geta stuðlað að aukinni nýtingu lífrænna hliðarstrauma og skýrari umgjörð um framleiðslu og notkun lífrænna áburðarvara á Íslandi.
Bændasamtök Íslands og Orkídea sendu inn umsagnir um drögin fyrir hönd Terraforming LIFE. Umsagnirnar má nálgast hér:


· Hlekkur á umsögn Bændasamtaka Íslands


· Hlekkur á umsögn Orkídeu

Ein mikilvægasta breytingin í drögunum fyrir Terraforming LIFE verkefnið er að fiskeldismykja er skilgreind sem áburðarvara af lífrænum uppruna. Sú skilgreining skapar skýrari forsendur fyrir nýtingu fiskeldismykju sem auðlindar og styður við þróun lausna þar sem næringarefni eru endurheimt og nýtt á ný.


Drögin gefa einnig til kynna skýran vilja stjórnvalda til að skapa ramma um nýtingu lífrænna hliðarstrauma. Jafnframt er lögð aukin áhersla á kröfur um gæði, rekjanleika og öryggi sem getur aukið fyrirsjáanleika fyrir þá aðila sem vinna að þróun og nýtingu slíkra afurða.

Breytingarnar endurspegla jafnframt þróun í átt að auknu hringrásarhagkerfi þar sem lífrænir hliðarstraumar eru í frekari mæli álitnir auðlind fremur en úrgangur. Slík nálgun getur skapað ný tækifæri til verðmætasköpunar og bættrar nýtingar innlendra auðlinda.


„Við fögnum þeim jákvæðu breytingum sem birtast í drögunum. Sérstaklega er mikilvægt að fiskeldismykja sé nú skilgreind sem áburðarvara af lífrænum uppruna, enda skapar það skýrari forsendur fyrir nýtingu hennar í framtíðinni. Jafnframt er ánægjulegt að sjá almennt aukna áherslu á nýtingu lífrænna hliðarstrauma og uppbyggingu ramma sem styður við hringrásarhagkerfið ,“ segir Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri Terraforming LIFE og tengiliður landeldisdeildar hjá Bændasamtökum Íslands.

Þrátt fyrir jákvæðar breytingar eru enn atriði í drögunum sem þarfnast frekari skýringa og útfærslu. Í umsögnum Bændasamtaka Íslands og Orkídeu eru settar fram ábendingar um þau atriði sem þarf að skýra betur áður en reglugerðin verður endanlega samþykkt.


Terraforming LIFE mun halda áfram að fylgja málinu eftir í samvinnu við Matvælastofnun og atvinnuvegaráðuneytið með það að markmiði að stuðla að skýru og skilvirku regluverki sem styður við nýtingu lífrænna hliðarstrauma sem auðlindar.

More
articles