Orkídea

Orkídea

Verkefnisaðili - BEN

Tilgangur Orkídeu er að stuðla að þróun orkutengdrar matvælaframleiðslu og hringrásarhagkerfis á Suðurlandi. Markmið félagsins að greina og greiða leið þeirra nýsköpunartækifæra sem Suðurland, og Ísland í heild sinni, hefur upp á að bjóða hvað varðar matvælaframleiðslu og líftækni – sérstaklega framleiðslu sem byggist á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa, vatns og annarra aðfanga sem Ísland hefur einstakan aðgang að í samanburði við önnur ríki.

Orkídea stuðlar að sjálfbærri og samkeppnishæfri matvælaframleiðslu á Suðurlandi með nýtingu grænnar orku, eflingu hringrásarhagkerfisins, nýsköpun og rannsóknum í samstarfi við fræðasamfélag og atvinnulíf

Markmið

Markmið Orkídeu er að auka verðmæti lífrænna endurnýjanlegra auðlinda og leysa brýn vandamál og áskoranir sem tengjast sjálfbærri matvælaframleiðslu og fæðuöryggi.

Meginhlutverk

Ábyrgð

Í Terraforming LIFE verkefninu leiðir Orkídea Vinnupakka 6, sem metur umhverfis- og efnahagslegáhrif nýrra áburðarafurða og framleiðsluferla með lífsferilsgreiningu. Auk þess mun Orkídea rannsaka samsetningu áburðarins og greina helstu næringarefni og áhættuþætti með það að markmiði að þróa framleiðsluferli og áburð þar sem gæði og öryggi eru í fyrirrúmi.

Orkídea mun einnig leggja sitt af mörkum í miðlun, nýtingu og kynningu á niðurstöðum verkefnisins í Vinnupakka 7.

Um

Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis.

Viltu fá frekari upplýsingar um Orkídeu?

Smelltu hér fyrir neðan til að heimsækja vefsíðu Orkídeu