Fyrr á þessu ári skipaði Umhverfis, orku og loftslagsráðuneytið samráðshóp um lífræna hliðarstrauma úr matvælaframleiðslu. Hlutverk hópsins er að stuðla að samræmingu stjórnsýslu, kortleggja hindranir í regluverki og stjórnsýslu og leggja fram tillögur sem styðja við aukna nýtingu lífrænna hliðarstrauma og þróun hringrásarhagkerfis á Íslandi.
Í samráðshópnum eiga sæti fulltrúar umhverfis, orku og loftslagsráðuneytisins, atvinnuvegaráðuneytisins, Umhverfis og orkustofnunar, Bændasamtaka Íslands, Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, Samtaka iðnaðarins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Markmið hópsins er að skapa betri forsendur fyrir nýtingu verðmætra næringarefna og auðlinda sem falla til í íslenskri matvælaframleiðslu og vinna að lausnum sem draga úr sóun og styðja við aukna hringrás auðlinda.
Skipun hópsins var jákvætt skref sem endurspeglar aukna áherslu stjórnvalda á að skilgreina lífræna hliðarstrauma sem auðlind fremur en úrgang. Fyrir verkefni á borð við Terraforming LIFE skiptir slík vinna miklu máli, enda getur skýrara regluverk og samræmd stjórnsýsla haft veruleg áhrif á möguleika til nýtingar hliðarstrauma á borð við fiskeldismykju.
Vinna hópsins fór af stað í sumar og voru haldnir tveir fundir á fyrstu mánuðum starfs hans. Á fundunum var meðal annars fjallað um hindranir sem tengjast nýtingu lífrænna hliðarstrauma og mögulegar leiðir til að bæta umgjörð um slíka starfsemi.
Að loknum fyrstu tveimur fundum hópsins urðu tímabundnar tafir á starfi hans þegar formaðurinn lét af störfum hjá ráðuneytinu og tók til starfa hjá Umhverfis- og orkustofnun. Í lok október var staðfest að hann myndi áfram gegna formennsku í hópnum sem fulltrúi ráðuneytisins og gert er ráð fyrir að næsti fundur verði boðaður innan skamms.
„Það er mjög jákvætt að vinna samráðshópsins sé að fara aftur af stað. Mikilvægt er að hópurinn fái nú tækifæri til að halda vinnunni áfram og ljúka því verkefni sem honum var falið, enda eru fjölmörg úrlausnarefni framundan varðandi aukna nýtingu lífrænna hliðarstrauma á Íslandi.“ segir Gyða Pétursdóttir, verkefnastjóri Terraforming LIFE og fulltrúi Bændasamtaka Íslands í samráðshópnum.


