Innan Terraforming LIFE hefur verið komið á fót tilraunaaðstöðu fyrir lífgasrannsóknir sem gerir mögulegt að rannsaka og meta lífgasmöguleika ólíkra lífrænna hliðarstrauma við íslenskar aðstæður.
Aðstöðunni er ætlað að styðja við rannsóknir á nýtingu fiskeldismykju úr landeldi til lífgasframleiðslu og auka þekkingu á því hvernig fiskeldismykja í bland við aðra hliðarstrauma getur stuðlað að framleiðslu endurnýjanlegrar orku og endurvinnslu næringarefna. ReSource International ehf. vinnur að rannsóknunum í samstarfi við First Water.
Markmið rannsóknanna er að afla gagna um lífgasnýtni mismunandi hráefna og bæta skilning á því hvernig best megi nýta þau sem auðlind. Niðurstöðurnar munu nýtast við þróun framtíðarlausna fyrir lífgasframleiðslu á Íslandi og styðja við markmið um aukna hringrás lífrænna efna og næringarefna.
„Með þessari aðstöðu skapast tækifæri til að rannsaka lífgasmöguleika íslenskra hliðarstrauma hér á landi. Sambærileg aðstaða hefur ekki verið fyrir hendi á Íslandi hingað til og því verður nú hægt að meta hvernig fiskeldismykja í bland við aðra hliðarstrauma, til dæmis svínamykju, nýtist til lífgasframleiðslu. Sú þekking mun styðja við frekari uppbyggingu lífgaslausna á Íslandi og er mikilvægt skref fyrir Terraforming LIFE verkefnið .“ segir Sigurður Trausti Karvelsson, yfirumsjónaraðili Terraforming LIFE og verkefnastjóri rannsókna og þróunar hjá First Water.


