Matsáætlun fyrir umhverfismat Terraforming LIFE hefur verið skilað inn til Húsnæðis-, mannvirkja- og skiplagsstofnunar (HMS). Matsáætlunin hefur verið unnin af EFLU fyrir hönd verkefnisins og lýsir því hvernig staðið verður að mati á umhverfisáhrifum verkefnisins.
Næstu mánuði tekur við lögbundið kynningar- og umsagnarferli. Gert er ráð fyrir að matsáætlunin verði auglýst opinberlega og að almenningur, hagaðilar og aðrir sem málið varðar fái tækifæri til að kynna sér áætlunina og koma á framfæri athugasemdum.
Að því loknu verður unnið að gerð umhverfismatsskýrslu sem einnig fer í lögbundið umsagnarferli áður en álit HMS liggur fyrir.
Samkvæmt núverandi verkáætlun er stefnt að því að skila umhverfismatsskýrslu snemma árs 2027. Ef ferlið gengur samkvæmt áætlun gæti endanlegt álit HMS legið fyrir á vormánuðum 2027. Tímasetningar geta þó tekið breytingum eftir umfangi umsagna og afgreiðslutíma stjórnvalda.
Nánari upplýsingar um umhverfismatið og framgang verkefnisins verða birtar á hér á heimasíðu Terraforming LIFE eftir því sem ferlinu vindur fram.


