Lært af lífgasveri í Færeyjum

Date

Á vormánuðum fór Terraforming LIFE verkefnishópurinn til Færeyja til að kynna sér hringrásarlausn fyrir meðhöndlun lífrænna hliðarstrauma frá fiskeldi og landbúnaði. Markmið heimsóknarinnar var annars vegar að heimsækja lífgasverið FÖRKA og hins vegar að eiga samtal við fulltrúa bænda sem nýtt hefur áburðinn sem framleiddur er í lífgasverinu.

FÖRKA – lífgasver Færeyja
FÖRKA lífgasverið er staðsett nærri Þórshöfn, höfuðborg Færeyja. FÖRKA hefur verið í rekstri frá árinu 2020 og er eina lífgasverið í eyjunum. Verið er í eigu laxeldisfyrirtækisins Bakkafrost og var sett á fót til að bæta meðhöndlun lífrænna úrgangsstrauma frá fiskeldi.

Hringrás lífrænna hliðarstrauma

Í FÖRKA er fiskeldismykja og dauðfiskamelta frá fiskeldi unnin ásamt kúamykju og öðrum lífrænum hliðarstraumum, þar á meðal afskurði af ávöxtum og grænmeti. Áður en lífgasverið var reist var verulegt magn af aukaafurðum fiskeldis flutt úr landi. Með tilkomu versins er lífræna efnið nú unnið innanlands, sem gerir Færeyjum kleift að halda bæði orku og næringarefnum innanlands.

Orkuframleiðsla og notkun áburðar í landbúnaði

Lífgasverið framleiðir lífgas sem er nýtt til framleiðslu á bæði raforku og varma. Þessi orka er tengd inn á staðbundin hitaveitu- og raforkukerfi, sem styður við aukna notkun endurnýjanlegrar orku og dregur úr þörf fyrir jarðefnaeldsneyti.

Auk þess framleiðir lífgasverið lífrænan áburð sem nýttur er í landbúnaði og stuðlar þannig að minni notkun innflutts tilbúins áburðar. Verkefnishópurinn hitti fyrir Sigert Patursson bónda á Vatnaskarði, sem hefur notað áburðinn frá FÖRKA frá upphafi. Samkvæmt hans reynslu hefur FÖRKA áburðurinn gert honum kleift að draga verulega úr notkun tilbúins áburðar. Hann áætlaði að kostnaður vegna innkaupa á tilbúnum áburði hafi lækkað um 40 prósent og telur líklegt að frekari lækkun muni nást með tímanum.

Lyktarstjórnun og nálægð við byggð

Reynsla FÖRKA sýnir að þegar lífgasver eru hönnuð og rekin samkvæmt ströngum kröfum geta þau starfað í nálægð við byggð án þess að valda ónæði. Verið er staðsett í 1,8 km fjarlægð frá Þórshöfn og nýr íþrótta- og samkomustaður er um 1 km frá verinu. Margvíslegar ráðstafanir eru til staðar til að koma í veg fyrir lyktarútstreymi. Þar á meðal er lokanlegt móttöku- og losunarsvæði með undirþrýstingi, loftsíun og gasþétt geymsla á meltu.

Samkvæmt umhverfisyfirvöldum í Færeyjum hefur aðeins ein formleg kvörtun borist frá upphafi rekstrar árið 2020 og var hún síðar dregin til baka eftir rannsókn. Rannsókn yfirvalda leiddi í ljós að uppruna lyktarinnar mátti að öllum líkindum rekja til áburðardreifingar á sveitabæ í grennd við Þórshöfn en ekki til FÖRKA.

Á heildina litið sýnir reynslan af starfsemi FÖRKA að lyktaráhrif frá slíku lífgasveri eru mjög takmörkuð, svo framarlega sem vandað er til hönnunar og rekstri er sinnt af festu.

Viðurkenningar og framsækin nálgun

FÖRKA hefur hlotið bæði innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar, þar á meðal tilnefningar til umhverfisverðlauna og eins vakið alþjóðlega athygli fyrir framlag sitt til sjálfbærrar orkuvinnslu og úrgangsstjórnunar.

Stofnun FÖRKA endurspeglar framsýna nálgun Bakkafrost og sýnir hvernig fjárfestingar leiddar af atvinnulífinu geta umbreytt hringrásarmarkmiðum í raunhæfar lausnir til meðhöndlunar lífrænna hliðarstrauma, á sama tíma og virðisauki verður til þvert á atvinnugreinar.

Samstarf við bændur

Eins og áður var nefnt hitti verkefnishópurinn Sigert Patursson, kúa- og sauðfjárbónda á Vatnaskarði, sem hefur um árabil gegnt formennsku í færeyska bændasambandinu. Sigert notar lífrænan áburð frá FÖRKA á búi sínu og hefur mjög jákvæða reynslu af notkun hans. Í heimsókninni miðlaði hann hagnýtri reynslu sinni og sjónarmiðum um virkni áburðarins í landbúnaði, sem veitti hópnum mikilvæga innsýn.

Mikilvægi fyrir Terraforming LIFE

Þótt lífgasver Færeyinga sé að einhverju leyti frábrugðið áherslum Terraforming LIFE má draga mikilvægan lærdóm af reynslu Færeyja. FÖRKA hefur sýnt fram á hvernig tæknilegar lausnir, hagkvæmt skipulag flutninga, virk þátttaka samfélags og samstarf milli ólíkra aðila geta stutt við örugga og sjálfbæra nýtingu lífrænna hliðarstrauma.

Heimsóknin til Færeyja veitti Terraforming LIFE verkefnishópnum innsýn sem nýtist í áframhaldandi vinnu Terraforming LIFE við að efla hringrásarlausnir fyrir lífræna hliðarstrauma, með það að markmiði að styrkja auðlindanýtingu og sjálfbærni í fiskeldi og landbúnaði á Íslandi.

More
articles