Niðurstaða liggur nú fyrir frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun um að fyrirhugað lífgas- og áburðarver í Þorlákshöfn skuli fara í fullt mat á umhverfisáhrifum. Stöðin verður reist á iðnaðarsvæði við Þorlákshöfn.
Í niðurstöðunni kemur fram að þörf sé á frekari greiningu á tilteknum þáttum áður en hægt er að taka endanlega afstöðu, meðal annars með tilliti til loftgæða og lyktar, sem eru algeng úrlausnarefni við vinnslu lífræns úrgangs. Reynsla nágrannaþjóða t.d. Færeyinga af rekstri samskonar lífgasvera í nágrenni þéttbýlis sýnir að auðvelt er að koma í veg fyrir lyktar- og loftmengun með tiltölulega einföldum tæknilausnum.
Undirbúningur fyrir umhverfismatið er þegar hafinn og verður unnið markvisst að því að þróa verkefnið áfram í samræmi við þær kröfur og ábendingar sem fram hafa komið.
Áhugaverðir hlekkir:

