Terraforming LIFE kynnt á ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi

Date

Sigurður Trausti Karvelsson, yfirumsjónaraðili Terraforming LIFE, kynnti verkefnið á ársfundi LIFE áætlunarinnar á Íslandi sem haldinn var í Norræna húsinu fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn var á vegum Rannís en þar komu saman fulltrúar verkefna, stjórnvalda og annarra hagsmunaaðila til að fara yfir stöðu LIFE verkefna á Íslandi, miðla reynslu og ræða helstu áskoranir og tækifæri.

Áhersla á lærdóm og áskoranir
Í erindi sínu fjallaði Sigurður Trausti um helstu áskoranir sem fylgja framkvæmd umfangsmikilla samstarfsverkefna á sviði hringrásarhagkerfis og sjálfbærni. Þá lagði hann jafnframt áherslu á þann lærdóm sem hefur skapast í gegnum Terraforming LIFE, meðal annars í tengslum við umsóknina, aðfangakeðjur og regluverk.

Upptaka af kynningunni
Hér fyrir ofan er hægt að horfa á upptöku af fyrirlestri Sigurðar Trausta. Fyrirlesturinn hefst eftir 2 klukkutíma og 17 mínútur. Einnig er hægt að smella á þennan hlekk hér:
Upptaka af ársfundi LIFE áætlunarinnar

More
articles