Terraforming LIFE kynnt á fjölbreyttum vettvangi

Date

Undanfarna mánuði hefur Terraforming LIFE verið kynnt á fjölbreyttum vettvangi bæði innanlands og erlendis. Verkefnið hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum, kynnt á ráðstefnum og viðburðum og vakið athygli fyrir áherslu sína á nýtingu fiskeldismykju og annarra lífrænna hliðarstrauma í hringrásarhagkerfi.


Á ráðstefnunni Nordic Biogas Conference í Reykjavík kynnti Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu, Terraforming LIFE og þá möguleika sem felast í að umbreyta fiskeldismykju og öðrum lífrænum hliðarstraumum í lífgas, orku og lífrænan áburð.

Verkefnið var jafnframt kynnt á ráðstefnunum Aqua Ice og IceFish af samstarfsaðilum verkefnisins, þar á meðal fulltrúum First Water og SMJ. Í tengslum við Aqua Ice tók verkefnið einnig þátt í svokölluðum Salmon & Lava Tour þar sem Sigurður Trausti Karvelsson kynnti Terraforming LIFE fyrir alþjóðlegum gestum í Ráðhúsi Ölfuss.


Verkefnið hefur einnig fengið umfjöllun utan Íslands. Finnski miðillinn Business Kristinestad fjallaði nýlega um Terraforming LIFE og þá möguleika sem felast í að nýta fiskeldismykju frá íslensku landeldi til framleiðslu á lífgasi og lífrænum áburði. Þá var Terraforming LIFE valið til umfjöllunar í upplýsingapakka CORDIS um nýsköpun í evrópsku fiskeldi.

Terraforming LIFE hefur einnig fengið umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum. Í Morgunblaðinu birtist ítarleg umfjöllun um verkefnið og þau tækifæri sem felast í að nýta fiskeldismykju sem verðmæta auðlind í hringrásarhagkerfinu, meðal annars til framleiðslu á lífgasi og lífrænum áburði. Bændablaðið fjallaði einnig um Terraforming LIFE og framgang verkefnisins í umhverfismatsferli

Umfjallanir og viðburðir

Miðlun á reynslu og niðurstöðum Terraforming LIFE er mikilvægur þáttur í verkefninu. Með þátttöku á ráðstefnum, viðburðum og í fjölmiðlum skapast tækifæri til að efla umræðu um nýtingu lífrænna hliðarstrauma og deila þekkingu með hagaðilum innanlands og erlendis.

More
articles