Terraforming LIFE vekur athygli á ManuREsource 2026 í Hollandi

Í byrjun mars tóku fulltrúar Orkídea þátt í alþjóðlegu ManuREsource 2026 ráðstefnunni sem haldin var dagana 4.–6. mars í Ede/Wageningen í Hollandi. Ráðstefnan er einn helsti vettvangur í Evrópu fyrir nýsköpun og lausnir tengdar meðhöndlun og nýtingu lífrænna hliðarstrauma og lífræns áburðar. Terraforming LIFE í brennidepli Á ráðstefnunni stýrðu þau Helga Gunnlaugsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson […]
Terraforming LIFE á LIFE Platform fundi í Bologna

Terraforming LIFE tók þátt í LIFE Platform fundinum „Future-Proofing Europe’s Agri-Food Sector: Innovation, Resilience, Sustainability, and Competitiveness“, sem var haldinn af CINEA og Loftslagsaðgerðadeild Evrópusambandsins. Fundurinn fór fram við Háskólann í Bologna dagana 3.–4. desember 2025. Á fundinum komu saman LIFE-verkefni, stefnumótendur og sérfræðingar til að ræða hvernig nýsköpun og hringrásarlausnir geta styrkt evrópska matvælageirann […]
Umfjöllun um Terraforming LIFE í EU Research Magazine

Terraforming LIFE var til umfjöllunar í hausthefti EU Research Magazine. EU Research fjallar um framsækin evrópsk verkefni sem knýja áfram sjálfbærni og nýsköpun. Í þessari umfjöllun er hægt að lesa nánar um hvernig við vinnum að því að umbreyta fiskeldismykju og búfjáráburði í endurnýjanlega orku og lífrænan áburð, sem stuðlar að ölfugra hringrásarhagkerfi í landbúnaði […]
Tímamót í sjálfbæru fiskeldi og hringrásarhagkerfi á Íslandi

Það gleður okkur að greina frá tímamótum sem marka þáttaskil í sjálfbærri auðlindastjórnun á Íslandi. Fjögur leiðandi fyrirtæki í landeldi – First Water, Laxey, Samherji fiskeldi og Thor landeldi – hafa undirritað viljayfirlýsingu um að koma á formlegu samstarfi um ábyrga og sjálfbæra meðhöndlun og nýtingu hliðarstrauma frá landeldi. Markmið samstarfsins er að umbreyta úrgangi […]