First Water
First Water
Verkefnisaðili - COO
First Water er landeldisfyrirtæki í Þorlákshöfn sem framleiðir Atlantshafslax. Þátttaka þeirra í Terraforming LIFE er liður í stefnu fyrirtækisins um að þróa eins umhverfisvæna leið til rekstrar landeldisfyrirtækis og hægt er.
Markmið
Markmið First Water í verkefninu Terraforming LIFE er að reka sjálfbært landeldisfyrirtæki með ábyrgri meðhöndlun fiskeldismykju. Uppbygging stöðvarinnar í Þorlákshöfn fer fram í fösum, og þegar full framleiðsla næst er áætlað að hún skili um 60.000 tonnum af slægðum laxi (HOG) á ári.
Meginhlutverk
Ábyrgð
Í Terraforming LIFE ber First Water ábyrgð á að útvega fiskeldismykju úr fiskeldisstöð sinni. First Water mun setja upp afvötnunarbúnað sem mun hámarka endurheimt mykjunnar með því að prófa ný fylliefni í tromlusíum sem tengjast framleiðslunni.
Um
Að fæða heiminn með sjálfbærni að leiðarljósi
Með lokuðu landeldi sem nýtir kristaltært sjávarvatn frá Norður-Atlantshafi og grænni jarðvarmaorku ræktar First Water besta lax sem völ er á. Aðferð First Water líkir eftir náttúrulegum og sjálfbærum lífsferli laxa sem hrygna í ferskvatni, ferðast út í sjóinn og snúa síðan aftur. Þessi nálgun gerir sýklalyf ónauðsynleg og skilar af sér laxi með framúrskarandi bragði, á sama tíma og umhverfisáhrif eldisins eru lágmörkuð.
Viltu fá frekari upplýsingar um First Water?
Smelltu hér fyrir neðan til að heimsækja vefsíðu First Water.