Verkefnisaðilar
First Water
First Water er landeldisfyrirtæki í Þorlákshöfn sem framleiðir Atlantshafslax í lokuðum kerfum með Hybrid Flow-Through System (HFS) tækninni. Kerfið notar náttúrulega síað sjávarvatn úr borholum og nýtir endurnýjanlega orku Íslands til að tryggja hreinar og stöðugar aðstæður fyrir laxinn. Hönnun stöðvarinnar miðar að hámarks skilvirkni og sjálfbærni, og mun framleiðslan nema um 60.000 tonnum á ári þegar fullum skala er náð. Sem verkefnisaðili í Terraforming LIFE leggur First Water til fiskeldismykju sem er svo umbreytt í lífrænan áburð og lífgas, og stuðlar þannig að umhverfisvænu og sjálfbæru fæðukerfi.
Bændasamtök Íslands
- Verkefnisaðili - BEN
- Nánari upplýsingar um Bændasamtök Íslands
Bændasamtök Íslands eru hagsmunasamtök bænda. Þau eru málsvari bænda á opinberum vettvangi og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Orkídea
Orkídea er samstarfsverkefni um nýsköpun á Suðurlandi á vegum Landsvirkjunar, Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Landbúnaðarháskóla Íslands og Umhverfis, orku og loftslagsráðuneytis.
SMJ
Markmið SMJ hefur ávallt verið að bjóða viðskiptavinum upp á gæðaþjónustu. Á sama tíma leggur fyrirtækið ríka áherslu á að bæta og viðhalda sérþekkingu starfsmanna sinna. Fyrirtækið hefur smám saman aukið ráðgjafaþjónustu sína svo hægt sé að bjóða ráðgjöf á fjölmörgum sviðum.
Undanfarin ár hefur SMJ lagt ríkulega áherslu á að þróa þekkingu sína á fiskeldisiðnaðinum. Fjölbreytt sérfræðiþekking innan starfsfólks hefur gert þeim kleift að veita ráðgjöf sem nýtir samspil líffræðilegrar og tæknilegrar þekkingar.
Ölfus Cluster
Ölfus Cluster vinnur að uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu Ölfus og nærliggjandi sveitarfélögum. Sérstök áhersla er lögð á sjálfbæra og umhverfisvæna matvælaframleiðslu, þar sem nýsköpun og ábyrg nýting auðlinda eru í forgrunni.
Ölfus Cluster veitir ráðgjöf og aðstoð við stofnun og rekstur fyrirtækja á starfssvæðinu. Þjónustan felur meðal annars í sér stuðning við markaðssókn, vöruþróun, nýsköpun og aðstoð við gerð umsókna til fjármögnunarumsókna fyrir einstök verkefni.
Fylgstu með fréttum!
Viltu frá fréttir af þróun Terraforming LIFE?
Skráðu þig á póstlistann okkar.