Terraforming LIFE vekur athygli á ManuREsource 2026 í Hollandi

Date

Í byrjun mars tóku fulltrúar Orkídea þátt í alþjóðlegu ManuREsource 2026 ráðstefnunni sem haldin var dagana 4.–6. mars í Ede/Wageningen í Hollandi. Ráðstefnan er einn helsti vettvangur í Evrópu fyrir nýsköpun og lausnir tengdar meðhöndlun og nýtingu lífrænna hliðarstrauma og lífræns áburðar.

Terraforming LIFE í brennidepli

Á ráðstefnunni stýrðu þau Helga Gunnlaugsdóttir og Sveinn Aðalsteinsson frá Orkídeu hringborðsumræðum um tækifæri og áskoranir í lífgasframleiðslu. Þar var sérstaklega fjallað um hvernig unnið er í Terraforming LIFE að því að umbreyta hliðarstraumum frá landeldi og landbúnaði á Suðurlandi í verðmætar afurðir og sjálfbæra orku.

Umræðurnar sýndu mjög skýrt að þær lausnir sem við erum að þróa á Suðurlandi vekja áhuga langt út fyrir landsteinana. segir Sveinn Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Orkídeu.

Úrgangur verður að auðlind

ManuREsource-ráðstefnan leggur áherslu á nýjustu aðferðir og tækni til að breyta því sem áður var talið úrgangur í verðmætar auðlindir. Sú nálgun speglar vel markmið Terraforming LIFE, þar sem áhersla er á hringrásarlausnir, aukna nýtingu hráefna og lægri umhverfisáhrif.

Sterkara tengslanet og aukin samkeppnishæfni

Þátttaka í ráðstefnunni skapaði mikilvægan vettvang til að efla tengsl við erlenda samstarfsaðila og sækja nýja þekkingu inn í sunnlenskt nýsköpunarumhverfi. Með því að tengja alþjóðlega sérfræðiþekkingu við öflugt bakland Orkídeu styrkist samkeppnishæfni sunnlenskra afurða og stuðlað er að enn sjálfbærari matvælaframleiðslu.

More
articles